Kominn....
Mánudagur, 18. janúar 2010
.....18 janúar bara allt í einu... Yndislegt!! Janúar sem hefur alltaf verið svo lengi að líða og erfiður. Gott að hafa Þrettándann svona seint barasta þá fékk maður að hafa Reykjavíkurfólkið lengur hér..... síðan fór síðasta vika í að ganga frá jóladótinu já ég á sko alveg slatta setti samt ekki allt upp .essi jólin var bara pen þetta árið. Núna er portið fullt af skrauti ekkert pláss lengur það þurfti að draga gamla þaðan út hehehehe eftir fráganginn. Og svo var afmæli hjá pabba
Síðan var amma mín að deyja blessuð sé minning hennar.... ferð til fastalandsins í útför hennar finnst nú reyndar fáranlegt að hafa útförina ekki hér heima. Hér bjó hún mest allt sitt líf ól upp börnin sín gifti sig bar börn til skírnar þau fermdust einhverjir gengu í það heilaga hún kvaddi manninn sinn og tvö af börnunum sínum allt í Landakirkju en ég ræð engu í þessu eins og fleiru. Hún verður allavega jarðsett hér í kirkjugarðinum. Fjölskyldan býr öll á höfuðborgarsvæðinu nema mamma og við þrjú systkinin síðan býr Tryggvi bróðir ömmu hér í Eyjum. Landkirkja er bara svo yndisleg kirkja maður finnur bara svo mikinn kærleik og frið þar ég hef ekki fundið svona sterkt annarsstaðar.
Lífið er svo skrítið átti tvær ömmur.... kona að nálgast fimmtugt ekki langt síðan að ég var að ræða það við einhvern en mágkona mín er búin að missa báða foreldra sína .....en núna á ég bara eina en hún er yndisleg.
Myrkrið....
Sunnudagur, 15. nóvember 2009
Vinir og fjölskylda | Breytt 19.11.2009 kl. 13:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Er búin....
Þriðjudagur, 10. nóvember 2009
....að vera að spá í jólaföt fyrir börnin mín eins og oftast á þessum tíma ársins. Sem sennilega verða spariföt líka fyrri hluta ársins svona eftir vexti barnanna. Er ekki búin að kaupa neitt ennþá þarf skó og allt. Ætla að kíkja í bæinn fyrir helgi.
En í morgun var ég að fletta blöðum gærdagsins og rakst þá á grein um krakka sem þora ekki að leika sér af því að þau eru í svo fínum fötum (dýrum) fötum að fataskápur Súríar Cruise sémetin á 400 milljónir króna og barnafatamarkaðurinn velti 800 milljörðum króna og er í stöðugum vexti.
Það eru börnin líka og ég hef altaf látið föt ganga áfram sem ekki slítast hér. Ég veit alveg að börnin mín eiga örugglega of mikið af fötum eins og við öll. Maður finnur það vel þegar maður er að þvo og brjóta saman sem er endalaus vinna.
En að hugsa til þess að börn geti ekki leikið sér útaf fötum sem þau eru í af því að þau eru svo dýr og fín það er verið að taka ansi mikið frá krökkunum sem ættu að leika sér áhyggjulaus þegar þau eru með jafnöldrum sínum í skólanum og leikskólanum. Svona foreldrar eiga að skammast sín.
Ég lenti eitt sinn í því þegar ég var að vinna í skólanum... að ein móðir sem kom að leita að úlpu sonar síns í skólanum ....hún kostaði mikla peninga... ég hafði keypt úlpur á þrjú af mínum fimm börnum þá.... og þótti dýrt á sama pening.... og þessi úlpa kostaði þá ...úlpan sást ekki í skólanum... og mamman þjófkenndi alla starfsmenn skólans sem gerðu alltaf allt til að koma fötum til skila....síðan kom drengurinn í úlpunni dýru í skólann og mamman bara yppti öxlum hún fannst á snaga heima hjá einhverjum vini..... en að biðjast afsökunar á ásökunum sínum ekki til í hennar eðli.
HELD ÞAÐ SÉ HEILBRIGÐARA AÐ EYÐA AÐEINS MINNA BLESSUÐ BÖRNIN VAXA SVO HRATT OG ERU BARA BÖRN OG EIGA AÐ VERA ÞAÐ!!!
HOLD ER MOLD HVERJU SEM ÞAÐ KLÆÐIST
EIGIÐ GÓÐAN DAG......
????
Föstudagur, 30. október 2009
Hér koma 10 atriði um karlmenn sem fá þig kannski til að skilja þá betur...
1. Flestum karlmönnum líkar að vera rómantískir, kyssa og faðma. Þeir hafa þó þörf fyrir kynlíf öðru hvoru.
2. Þegar karlmenn hringja ekki tilbaka fyrr en eftir nokkra daga, þá þarf það ekki að þýða að þeim líki ekki við þig. Þetta er þeirra leið að halda þér spenntri. Flestir karlmenn vilja taka sér góðan tíma til að gera hlutina. Í rauninni finnst mörgum karlmönnum það aðlaðandi þegar konan hringir því þeir kunna að meta ”ögrandi og ófeimnu” týpuna!
3. Karlmönnum líkar að láta þér líða vel, en margir vita ekki hvernig og hvað það er sem að gerir þig glaða og afslappaða (t.d. nudd o.s.frv). Segðu honum hvað lætur þér líða vel og hann mun örugglega gera sitt besta til að uppfylla óskir þínar. Það þarf að gefa þeim svolítið spark...
4. Karlmenn myndu ekki hugsa svona mikið um útlitið ef að við gerðum það ekki. Karlmenn eru frá náttúrunnar hendi ”ruslarar”, og myndu vera miklu verri ef að það væri ekki vegna okkar. Án kvenna myndu þeir, sumir hverjir, sennilega ekki fara í bað!
5. Sumir karlmenn vilja eiga konu sem kemur fram við þá eins og mamma þeirra. Karlmenn eru litlir strákar allt sitt líf. Karlmenn elska að fá faðmlag, að það sé eldaður matur fyrir þá og að þú minnir hann á þegar hann á tíma hjá tannlækninum og að pabbi hans á 50 ára afmæli á sunnudaginn. Á þennan hátt líður þeim eins og það sé einhver sem að sér um þá. En það eru auðvitað takmörk... enginn karlmaður nennir endalaust að heyra þig segja ”taktu til eftir þig”, ”settu niður klósettsetuna” o.s.frv.
6. Keyptu fínu fötin á hann. Karlmönnum líkar þegar við klæðum þá upp. Þegar snýr að fötum eru flestir menn ”clueless”. Margir karlmenn vilja heldur að konan/kærasta þeirra segi þeim hverju þeir eigi að klæðast. Auðvitað gildir þetta aðeins þegar þið eruð á leiðinni út á lífið eða í fínni veislur. Reyndu líka að hemja þig í að að segja honum í hverju hann á að fara út í bakarí á sunnudagsmorgni.
7. Karlmenn eru mjög hræddir við að lenda í ástarsorg. Það er ástæðan fyrir því að karlmenn geta virkað eins og þeir séu hræddir við að binda sig þegar sambandið er að verða alvarlegt. Þeir gera þetta einfaldlega til að vernda sig gegn höfnun og særindum.
8. Mörgum karlmönnum líkar þegar kærastan þeirra er mjög kvenleg og gjarnan aðeins sexý.
9. Karlmenn og klám. Ástæðan fyrir því að karlmenn horfa á klám er sú að þeir elska fallegar konur og kynlíf, svo einfalt er það. Svona eru margir karlmenn bara, ekki taka það persónulega. Prófaðu frekar að taka þátt!
10. Karlmenn og tölvur. Ég segi stundum í gríni við kærastann minn; "ef að tölvan þín væri með brjóst og gæti búið til kaffi fyrir þig, hefðir þú enga þörf fyrir mig”. En þetta passar nefnilega ekki. Karlmenn elska nefnilega að sitja og leika nörd. Það er ekki af því að þeim er alveg sama um þig (það eru þó takmörk ef að þeir sitja allan daginn fyrir framan tölvuna). Þetta er áhugamál margra og það sem gleður þá. Viltu ekki að kærasti þinn sé glaður?
Og nú ertu vonandi búin að komast að því, að karlmenn eru alveg eins og við manneskjurnar!
Sá þetta á femin.is skemmtilegt í sukk og pestarumræðu......
Ætli.....
Föstudagur, 23. október 2009
Er.....
Miðvikudagur, 21. október 2009








....of snemmt að vera komin í jólaskap!!
Er það kannski bara gott fyrir sálartetrið í þessari orrahríð sem er búið senda okkur í af nokkrum gráðugum köllum!
Geta sungið jólalög í höfðinu kíkt á jólaföndrið (er að vísu búín að gera nokkur kort)
Sá uppskrift að flottum smákökum á sænsku jólabloggi sem ég ætla að baka fyrir jólin.
Er farin að plana og jólagleðin vex og vex































(JÓLA)KVEÐJA
HIA
Brosið
Fimmtudagur, 15. október 2009
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 15:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sólin....
Sunnudagur, 9. ágúst 2009
...skín glatt á okkur íbúana á Heimaey núna. Hún hefur reyndar verið dugleg að láta sjá sig þetta sumarið enda sést það á öllum gróðri berjasprettu kartöflurækt og fleiru. Hefur því þurft að vökva mikið í sumar. Jarðarberjauppskeran mín er góð og berin alltaf jafnsæt og góð. Sæþór Ingi ömmustrákur fékk sér jarðarber beint af plöntunum á hverjum degi meðan hann var hér. Það var gaman að fylgjast með honum í tínslunni og átinu lystin var svo góð.Hann hefur verið vel andoxaður þegar hann fór heim.
Það er svo frábært þegar náttúran sýnir góðu hliðarnar. Allir eru svo léttir í lundu sólbrúnir og sælir. Okkur veitir svo sannarlega ekki af einhverju gleðiaukandi þessa dagana.
Ýmislegt sem hrjáir hugann...... kreppa svínaflensa persónulegt heilbrigði og bara kvíði.......svo sem ekkert nýtt... hef nú alltaf verið frekar áhyggjufull yfir mörgu. Þó að lífið hafi alltaf verið mér gott hef verið heppin. Fyrir það er ég eilíflega þakklát!
Líkaminn er furðuverk...
Laugardagur, 18. júlí 2009
...hjartað slær meira en hundrað þúsund sinnum á sólarhring...
...flestir vita að öll höfum við ólík fingraför,en færri vita líklega að engar tvær tungur hafa eins far....
...neglurnar á fingrum okkar vaxa nánast fjórum sinnum hraðar en á tánum....
...konur blikka augunum næstum tvöfalt oftar en karlar...
...Hitler hafði aðeins eitt eista....
...við fæðumst með 300 bein í líkamanum en á fullorðinsaldri hefur þeim fækkað í 206....
...vitað er til að einn maður hafði hiksta í samfellt 69 ár...
...við hlæjum að minnsta kosti 10 sinnum á dag ....og ég er búin að því :)
Þitt er valið...
Laugardagur, 18. júlí 2009
Hann er sífellt innan seilingar
þegar syrtir í álinn
kaleikur bölsýni og kjarkleysis,
fleytifullur af myrkri
Fjær stendur bikar vonar og bjartsýni,
barmafullur af ljósi.
Teygðu þig í hann.
Ólafur Ragnarsson, úr bókinni Agnarsmá brot úr eilífð.


elintora
antonia
sigthora
kristleifur
helgigunnars
mingo
hector
gbljosa
asdisemilia
skordalsbrynja
ingveldurthe
cornette
tildators
ragnabi





